Dagana 3. til 6. júlí nk. mun vinnuskólinn bjóða upp á ókeypis aðstoð í görðum hjá einstaklingum.

 

Boðið verður m.a. upp á hreinsun beða, málun grindverka, gróðursetningu, ruslatínslu og aðra almenna garðvinnu, þó ekki með vélum. Skilyrði er að fullorðinn einstaklingur sé jafnframt á staðnum og leiðbeini.

 

Umsjónarmaður vinnuskólans, Ingibjörg Sigurðardóttir, mun hafa umsjón með þessari vinnu, metur verkefnin og sér um að útdeila þeim til vinnuskólans.

 

Sótt er um á bæjarskrifstofunni í síma 4308500 eða netfang grundarfjordur@grundarfjordur.is. Taka þarf fram hvaða aðstoðar sé óskað og á hvaða tíma. Umsóknarfrestur er til fimmtudagsins 29. júní.

 

Vinnuskólinn