Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

 Vatnsleki ´a Hrannarstíg

Í gær gaf sig vatnslögn ofarlega á Hrannarstíg, milli húsa nr. 12 og 14. Unnið var að því að því að finna og laga skemmdina í gær. Það myndaðist hálka niður Hrannarstíginn, sem reynt var að vinna vel á móti með því að salta. Vegfarendur á Hrannarstíg og gatnamótum við Grundargötu eru þó beðnir að hafa varann á sér og fara varlega, þar sem þarna gæti leynst meiri hálka en annarsstaðar.