Nú stendur yfir vinna við endurskoðun aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar, en ráðgjafarfyrirtækið Alta aðstoðar við verkið. Opnaður hefur verið sérstakur kynningarvefur fyrir verkefnið undir vefslóðinni http://www.skipulag.grundarfjordur.is/

Á vefnum má lesa nánar um áætlunargerðina, nálgast ýmis gögn og fylgjast með framgangi vinnunnar. Í gegnum vefinn er einnig hægt að senda inn ábendingar og önnur skilaboð um skipulagsvinnuna.

 

Nú er verið að leggja lokahönd á lýsingu skipulagsverkefnisins, en það er nokkurs konar „uppskrift” að vinnunni sem framundan er við að móta nýtt skipulag. Lýsingin verður birt opinberlega þannig að íbúar og aðrir geti kynnt sér efni hennar og sent inn ábendingar eða athugasemdir. Lýsingin verður nánar auglýst síðar í þessum mánuði.

Með haustinu verður svo haldinn opinn fundur með íbúum þar sem leitað verður eftir sjónarmiðum þeirra um þróun byggðarinnar.