Miðvikudaginn 12. mars nk. verður haldinn stofnfundur Matvælaklasa Vesturlands. Fundurinn verður í Landnámssetrinu í Borgarnesi og hefst kl. 13.00.

Á fundinn kemur Friðrik V, eigandi samnefnds veitingastaðar á Akureyri og einn forvígismanna "local-food" hreyfingarinnar fyrir norðan. Einnig Guðmundur H. Gunnarsson, starfsmaður Matís á Höfn í Hornafirði og verkefnisstjóri matvælaklasa Austurlands.

Þá verða kynningar frá Laufeyju Steingrímsdóttur og Torfa Jóhannessyni.

Á fundinum er ætlunin að stofna með formlegum hætti samtök matvælaframleiðenda á Vesturlandi og eru allir sem áhuga hafa hvattir til að mæta.