Jólatónleikar Tónlistarskóla Grundarfjarðar voru haldnir sunnudaginn 16. desember sl. í húsnæði Félagsmiðstöðvarinnar Eden.  Tónleikarnir voru afar vel sóttir og var húsið yfirfullt.  Nemendur og kennarar tónlistarskólans léku margvísleg lög fyrir gesti  við góðar undirtektir í huggulegri stemmingu yfir súkkulaðibolla og smákökum.

 

Nokkrar myndir frá tónleikunum má nálgast hér