Norska húsið

 

Opin samkeppni um hugmyndir að minjagripum sem tengjast Norska húsinu í Stykkishólmi eða Snæfellsnesi og nýta má til skrauts, skemmtunar eða daglegra nota. Markmið samkeppninnar er að fá fram hugmyndir að hlutum sem hægt er að selja í safnverslun Norska hússins.

Krafa er gerð um að hugmyndir að minjagripum sem koma til greina, verði hægt að fjölfalda í einhverju mæli. Tillögum er skilað á pappír í stærðinni A4. En ef um þrívíða hluti er að ræða, þá séu þeir ekki stærri um sig en 25 x 25 x 25 cm að rúmmáli. Upplýsingar um Norska húsið er hægt að nálgast á vefnum www.stykkisholmur.is eða senda fyrirspurn á norskhus@simnet.is og með heimsókn í Norska húsið í Stykkishólmi á Snæfellsnesi. Með tillögum skal fylgja nafn og heimilsfang höfundar í lokuðu umslagi auðmerktu með dulnefni. Engar takmarkanir eru á fjölda innsendinga. Tillögum er skilað fyrir 25. ágúst, merktar; Norska húsið "Minjagripir", 340 Stykkishólmi. 3 verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar. Dómnefnd áskilur sér rétt á að mæla ekki með verðlaunaveitingu ef innsendar tillögur teljast að hennar mati ekki standast gæði eða uppfylla væntingar aðstandenda keppninnar. Allar innsendingar verða meðhöndlaðar samkvæmt íslenskum höfundaréttarlögum og samið verður sérstaklega um afnotarétt þeirra hugmynda sem veljast til áframhaldandi vinnslu.

 

1. verðlaun 300.000.-

2. verðlaun 150.000.-

3. verðlaun 75.000.-

 

Dómnefnd skipa:

Aldís Sigurðardóttir

Elín Una Jónsdóttir

Guðmundur Páll Ólafsson

Gunnar Kristjánsson

Soffía Árnadóttir

Steinþór Sigurðsson

Sunneva Hafsteinsdóttir

 

Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla