Grundarfjarðarbær auglýsir laust til umsóknar starf verkstjóra í áhaldahúsi bæjarins.

Verkstjóri sér um undirbúning, skipulagningu og vinnu við ýmsar verklegar framkvæmdir og umhirðuverkefni á vegum áhaldahúss, s.s. við gatnakerfi og opin svæði, hreinlætismál, fráveitu og vatnsveitu, hefur umsjón með sumarstörfum og vinnuskóla og ýmsum fleiri verkefnum. Lögð er mikil áhersla á sveigjanleika, enda eru verkefni og vinnulag töluverðum breytingum háð. Iðnmenntun er æskileg, en reynslu má meta til jafns, krafa er gerð um haldgóða tölvukunnáttu og ritfærni. Lögð er áhersla á vinnusemi, samviskusemi, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. Konur jafnt sem karlar koma til greina í starfið.

 

Umsóknarfrestur er til 18. apríl. Starfslýsingu og umsóknareyðublöð er að finna á www.grundarfjordur.is og á bæjarskrifstofu. Nánari upplýsingar um starfið veita bæjarstjóri og skipulags- og byggingarfulltrúi (sími 430 8500).

 

Bæjarstjórinn í Grundarfirði