Grundarfjarðarbær efnir á ný til ljósmyndasamkeppni árið 2015. Þetta er í sjötta sinn sem bærinn blæs til ljósmyndasamkeppni og hefur þótt takast vel til. Á þennan hátt hefur bærinn fengið nýjar myndir til birtingar og þátttakendur sínar myndir birtar.

Myndefni samkeppninnar í ár er Gestir og gangandi. Myndirnar verða að vera teknar innan sveitarfélagsmarka. Samkeppnin stendur til 30. september 2015 og má hver þátttakandi senda inn að hámarki fimm myndir.

Verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu myndirnar. Fyrstu verðlaun eru 50.000 kr., önnur verðlaun 30.000 kr. og þriðju verðlaun 20.000 kr.

Tilgangur keppninnar er sá að Grundarfjarðarbær komi sér upp góðu safni mynda úr sveitarfélaginu til notkunar við kynningarstarf og annað sem viðkemur starfsemi bæjarins. Jafnframt að ýta undir áhugaljósmyndun meðal bæjarbúa.

Grundarfjarðarbær hvetur bæjarbúa til þátttöku. Ekki þarf dýrar vélar til að taka þátt heldur er það frekar hugmyndaflug, staðsetning, birta, myndefni og tímasetning sem ráða því hvernig til tekst þegar smellt er af mynd.

Reglur keppninnar

1.   Skil á myndum fara fram með því að senda myndirnar á

      netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is

2.   Skilafrestur á myndum er til miðnættis miðvikudaginn 30. september 2015.

3.   Ekki má birta myndir sem skilað hefur verið inn, hvorki á netinu,

      sýningum né fjölmiðlum fyrr en að lokinni verðlaunaafhendingu.

4.   Myndirnar verða að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu

      janúar til september.

5.   Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að nota myndirnar á vefsíðum sínum

      endurgjaldslaust.

6.   Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að prenta myndirnar og hafa til

      sýnis, hvort sem er í húsnæði bæjarins eða annars staðar,

      endurgjaldslaust.

7.   Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að birta myndirnar endurgjaldslaust.

8.   Skila verður myndum í .jpg formati.

9.   Skila má fleiri en einni mynd en að hámarki fimm myndum frá hverjum

       þátttakanda.

10.  Með því að senda inn mynd/ir í keppnina er þátttakandi að samþykkja

       reglur hennar.