Viðbrögð Grundarfjarðarbæjar vegna Covid-19

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum þann 7. apríl sl. fyrstu aðgerðir vegna áhrifa Covid-19 á samfélagið. Eftirfarandi er tillagan sem samþykkt var:

a) Fasteignagjöld

Þann 30. mars sl. var samþykkt á Alþingi bráðabirgðaákvæði við lög um tekjustofna sveitarfélaga sem heimilar gjaldendum fasteignaskatta í C-flokki (atvinnuhúsnæði), sem eiga við tímabundna rekstrarörðugleika að stríða vegna tekjufalls, að óska eftir frestun á allt að þremur greiðslum fasteignaskatts sem eru á gjalddaga 1. apríl 2020 til og með 1. desember 2020. Gjalddagi og eindagi greiðslna sem frestun tekur til er 15. janúar 2021.

Samþykkt heimild til frestunar greiðslna fasteignagjalda hjá Grundarfjarðarbæ sem hér segir:

- Fyrir gjaldendur sem hafa orðið fyrir verulegu tekjutapi vegna áhrifa Covid-19.

- Frestun þriggja greiðslna fasteignagjalda frá mars-desember 2020 sem lögð eru á skv. flokki C, þannig að þeir komi til greiðslu síðar.

- Á næstu þremur mánuðum verði metið hvort fresta þurfi gjalddögum enn frekar.

- Fyrirkomulag greiðslna verði ákveðið í samvinnu við hvern og einn gjaldanda.

- Sækja skal um frestun á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is

- Að gjaldandi sé ekki í langvinnum vanskilum á opinberum gjöldum, sköttum og öðrum

greiðslum til sveitarfélagsins.

- Ef arði er úthlutað eða eigin hlutir keyptir á árinu 2020 eða úttekt eiganda innan ársins 2020 fer umfram reiknað endurgjald þeirra er heimilt að synja umsókn um frestun gjalda.

b) Þjónustugjöld

Í samræmi við áður birta auglýsingu um fyrirkomulag gjaldtöku þjónustugjalda, þann 25. mars sl. á vef bæjarins:

Þjónustugjöld vegna Leikskólans Sólvalla, Eldhamra og fæðisáskriftar verði ekki innheimt þegar börn eru heima af ástæðum eins og sóttkví, veikindum eða vegna ákvörðunar foreldra, skv. neðangreindu:

Foreldrum leikskólabarna (Sólvellir og Eldhamrar) býðst að hafa börnin sín heima, á meðan auglýsing heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar er í gildi. Gjöld falla þá niður fyrir þann tíma sem barn er heima og nýtir ekki þjónustuna. Miðað er við heilar vikur. Barn heldur leikskólaplássi sínu á meðan. Tilkynna þarf það til skólastjórnenda. 

Tekið er tillit til þessa við reikningagerð strax um mánaðamótin mars/apríl, og gjöld maímánaðar lækkuð með hliðsjón af dvalartíma í mars/apríl, eftir atvikum.

Ekki verða sendir út reikningar vegna heilsdagsskóla, meðan sú starfsemi liggur niðri og inneign látin ganga upp í aðra reikninga. 

Verði veruleg röskun á ofangreindri starfsemi og þjónustu, verður fyrirkomulag á útsendingu reikninga endurskoðað. 

c) Viðspyrna í ferðaþjónustu og menningarlífi

Farið verði í sérstakar aðgerðir/verkefni til að styðja við frekari markaðssetningu svæðisins og undirbúning þess að taka á móti ferðafólki, bæði til skemmri tíma (síðar á árinu) og lengri (almennt) og styðja við menningu, með ráðstöfunum í fjárhagsáætlun bæjarins 2020 og með því að leita eftir samvinnu fyrir fyrirtæki og félagasamtök.

Bæjarráði og bæjarstjóra falin nánari útfærsla, með hliðsjón af eftirfarandi:

- Fjárhagsáætlun 2020 - framkvæmdir/viðhald; skoða og útfæra mögulega flýtingu framkvæmda eða viðbótarfjárframlög á árinu, s.s. við tjaldsvæði, opin svæði o.fl.

- Sögumiðstöð: leita samstarfs við félagasamtök og fyrirtæki, um starfsemi til skemmri tíma.

- Svæðisgarðurinn Snæfellsnes; leita eftir upplýsingum um framgang áhersluverkefna, sem samþykkt voru 2. desember sl. í fulltrúaráði, einkum verkefnis um branding/ferðaleið á Snæfellsnesi og matarverkefnis (sælkeraferðir á Snæfellsnesi), sem ætti að koma ferðaþjónustu og framleiðendum á svæðinu verulega til góða.

- Samstarf við ferðaþjónustuaðila og félagasamtök; sjá einnig lið d) en leita eftir hugmyndum um viðburð/viðburði, til að þjappa íbúum enn frekar saman og til að laða fólk til bæjarins þegar samkomur og ferðalög verða heimil og örugg. 

d) Samtal við fulltrúa fyrirtækja

Bæjarstjórn bjóði fulltrúum fyrirtækja til samtals (í fjarfundum) á næstunni, um stöðu mála og horfur, vegna ástands af völdum Covid-19, og um frekari aðgerðir. 

e) Greining á þróun tekna

Í framhaldi af lið d) og í samræmi við óskir Grundarfjarðarbæjar og fundi bæjarstjóra, Sambandsins og SSV með RSK, sem og erinda til RSK í kjölfarið, um betri upplýsingagjöf um útsvarstekjur sveitarfélagsins/sveitarfélaga, verði rýnt í þróun útsvarstekna á síðustu misserum og reynt að greina mögulegt tekjutap nú, m.v. stöðu atvinnugreina, sérstaklega ferðaþjónustunnar.