Laugardagurinn 23. mars er viðmiðunardagur kjörskrár vegna alþingiskosninga sem hafa verið auglýstar þann þann 27. apríl n.k. http://www.innanrikisraduneyti.is/frettir/nr/28446

Á kjörskrá skal taka alla þá sem skráðir voru með lögheimili í ákveðnu sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár fimm vikum fyrir kjördag, uppfylli þeir að öðru leyti skilyrði 1. mgr. 1. gr. kosningalaga.

 

Þjóðskrá Íslands vill af þessu tilefni minna á nauðsyn þess að íbúaskráningin sé sem réttust. Flutningur á lögheimili á milli sveitarfélaga og innan sveitarfélags, sem á sér stað eftir 23. mars 2013 mun ekki hafa áhrif á útgefinn kjörskrárstofn. Þetta þýðir að tilkynningar um lögheimilisbreytingar þurfa að berast í síðasta lagi 22. mars eigi þær breytingar að verða skráðar í þjóðskrá fyrir viðmiðunardag.