Þorsteinn Steinsson bæjarstjóri veitti viðurkenningar fyrir fyrirmyndargarða ársins 2016

Skipulags- og byggingarnefnd Grundarfjarðarbæjar ákvað að veita viðurkenningar fyrir fyrirmyndargarða í bænum árið 2016. Það voru hjónin Jón Snorrason og Selma Friðfinnsdóttir sem hlutu viðurkenninguna í flokki heimila en í flokki fyrirtækja var það Bjargarsteinn Mathús sem hlaut viðurkenningu.