Viðvera atvinnuráðgjafa og menningarfulltrúa

 Helga Guðjónsdóttir atvinnuráðgjafi SSV og Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúi SSV verða til viðtals í Samkomuhúsi Grundarfjarðar mánudaginn 1. mars nk. á milli 10-12.  Tímapantanir eru hjá Helgu í síma 895-6707

Verkefni atvinnuráðgjafa felast í að vera einstaklingum, fyrirtækjum og sveitarstjórnum til aðstoðar á sviði atvinnumála. M.a. er veitt:

  • aðstoð við að greina vandamál
  • leiðbeiningar um hvar er hægt að fá aðstoð, bæði fjárhagslega og tæknilega frá stoðkerfum atvinnulífsins
  • aðstoð við gerð umsókna til sjóða
  • aðstoð við gerð rekstraráætlana
  • aðstoð við markaðsmál

Utan viðveru hér, má svo alltaf hafa samband við SSV og fá símtal eða panta viðtal við ráðgjafa SSV í atvinnu- og menningarmálum.
Sími SSV er 433-2310.

 

Menningarfulltrúi vinnur að ýmsum samstarfsverkefnum og ráðgjöf varðandi menningarmál. Menningarfulltrúi starfar með uppbyggingarsjóðnum og veitir umsækjendum um menningarstyrki upplýsingar og ráðgjöf. Menningarfulltrúi vinnur einnig með fagráði menningarmála að tillögu um úthlutun menningarstyrkja úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands og heldur utan um samskipti við styrkþega sjóðsins. Mörg mjög áhugaverð og fjölbreytt verkefni hafa hlotið menningarstyrki, auk þess sem veittir hafa verið styrkir til stofnana og fyrirtækja sem vinna að menningarmálum.

Þarftu aðstoð?
Hafðu samband við menningarfulltrúa SSV:
Sigursteinn Sigurðsson
Sími: 433-2313 / 698-8503
Netfang: sigursteinn@ssv.is