Forstöðumenn Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi buðu yfirmönnum fyrirtækja og stofnana í Grundarfirði til kynningarfundar á Hótel Framnesi í hádeginu í gær. Fundurinn var haldinn í tilefni af „viku símenntunar“ sem nú gengur yfir. Einnig voru kynnt þau námskeið sem í boði verða í Grundarfirði og nágrenni á næstu misserum.

Upplýsingar um námskeið og námsvísi er að finna á heimasíðun Símenntunarmiðstöðvarinn, www.simenntun.is. Sé áhugi fyrir námskeiðum sem kynnt eru í námsvísi en ekki kennd á svæðinu er fólk hvatt til að senda erindi til Símenntunarmiðstöðvarinnar þess efnis. Náist næg þátttaka í viðkomandi námskeið verður því komið við.