Viltu líflegt, gefandi og internasjónalt sumar?

Þá erum við að leita að þér! 

Við eigum einmitt á lausu skemmtileg sumarstörf við upplýsingagjöf til ferðamanna og móttöku gesta í Sögumiðstöðinni, auk þess að lána út bækur á bókasafninu. Þetta verður svakalega gott sumar og fullt af skemmtilegu fólki á ferð í firðinum fagra!

Við leitum að fólki með þokkalega tungumálakunnáttu, kostur er að hafa þekkingu á umhverfi og staðháttum í Grundarfirði og nærsveitum, en ef þú ert fljót(ur) að læra, þá getum við líka sett þig vel inní það sem þú þarft að vita til að geta sinnt starfinu.

Ef þú ert góð(ur) í að leita að og setja fram upplýsingar, tala eða skrifa, og nota samfélagsmiðla til þess, þá er þetta starf við þitt hæfi. Við bjóðum þér á námskeið til að koma þessu öllu heim og saman. 

Starfið getur verið fullt starf eða hlutastarf,  alla eða flesta daga vikunnar, kl. 10-17, þar sem tveir eða fleiri skipta með sér vöktum. Komdu með þína hugmynd að vinnutíma og við vinnum með það!

Við leitum að metnaðarfullu starfsfólki sem getur unnið sjálfstætt. 

Starfið er kjörið fyrir fólk með uppsafnaða og haldgóða lífsreynslu – sem elskar að segja frá Grundarfirði og Snæfellsnesi – líka þeim eru ungir (18+) og langar að læra. Hentar vel fyrir vini eða vinkonur sem vilja taka þetta sem samvinnuverkefni.

Athugið: íslenska er ekki skilyrði sem móðurmál í þessu starfi.

Í sumar vinnum við með glænýtt „branding“ efni, sem Svæðisgarðurinn Snæfellsnes mun setja fram í lok þessa mánaðar – verið endilega spennt! Þetta verður eitthvað!

Námsfólk í upplýsingafræði, ferðamálafræði eða öðrum háskólagreinum gæti einmitt nýtt þetta tækifæri til að ná sér í reynslu.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí nk.

Sótt er um gegnum vefsíðu Grundarfjarðarbæjar; www.grundarfjordur.is-Laus störf

Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofu í síma 430 8500. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is

 

 

 

Are you looking for a lively, inspiring and international summer
in beautiful surroundings?

 

Then we are looking for you!

We have available this summer, rewarding jobs at the Grundarfjörður Information Center – in the town of KIRKJUFELL!

The job involves welcome visitors at the Saga Center, giving information to tourists, library service, etc.  

We are looking for people with decent language skills, as well as knowledge of the tourism and environment introduction in Grundarfjörður and the surrounding area. But – if you don´t, but you are a quick learner, we will teach you what the job needs!  Also, if you have the ability to organize information and manage resources and the use of social media, this is the right job for you! We invite you to attend courses to prepare you for the job.

This can be a part-time work every day or most days of the week, at 10-17, where two or more employees share shifts. Bring your idea of your working hours and we will work with it! 

We are looking for ambitious people who can work independently. This is the ideal job for people with good quantity of life experience – but also for the young ones (18+) who are willing to learn and prosper, for friends who want to share shifts etc.

This is a summer job that is excellent for students in information science, tourism or other university studies.

Note! Icelandic is not necessary as a main language for this job. 

Please apply, until end of Wednesday 25th of May – through www.grundarfjordur.is

More info at town hall of Grundarfjordur municipality, tel. 430 8500 or e-mail at grundarfjordur@grundarfjordur.is