Á næstu dögum verða haldir fundir víða um Vesturland þar sem íbúum er boðið að taka þátt og hafa mótandi áhrif á gerð Menningarstefnu Vesturlands með þátttöku í vinnuhópum á fundunum.

 

Fundur fyrir íbúa á Snæfellsnesi verður mánudaginn 4. apríl kl. 17.30 í Samkomuhúsinu í Grundarfirði

Við hvetjum íbúa á Vesturlandi til að mæta og leggja sitt af mörkum til að móta skýra stefnu sem verður leiðarljós fyrir öflugt menningarstarf og samstarf sveitarfélaga um menningarmál á Vesturlandi.

Allir velkomnir

 

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi