Fræðslu- og menningarmálanefnd Grundarfjarðar veitir árlega viðurkenningu sem ber heitið "Helgrindur" til einstaklings eða aðila sem þótt hefur skara fram úr í ástundun og/eða störfum að menningarmálum í Grundarfirði.  Viðurkenningin er kynnt og veitt á bæjarhátíðinni.

 

Nú auglýsir nefndin eftir tilnefningum á einstaklingum og aðilum til þess að fá þessa viðurkenningu í ár.

 

Tilnefna má einn eða fleri aðila eftir óskum hvers og eins.

 

Tilnefningum skal skila til bæjarskrifstofu Grundarfjarðar, Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður, með bréfum, eða með  tölvupósti á grundarfjordur@grundarfjordur.is í síðasta lagi 7. maí n.k.