Leikskólinn Sólvellir óskar eftir að ráða kennara í stöðu deildarstjóra til starfa.

 

Um 100% starf er að ræða. Ráðið er í starfið frá 15. ágúst 2024. 

Leikskólinn Sólvellir er þriggja deilda leikskóli með um 50 nemendur á aldrinum 1-4 ára. Skólinn starfar eftir viðurkenndum hugmyndum og kenningum í uppeldisfræðum. Leikskólinn vinnur markvisst að uppbyggingu innra starfs, stjórnun og mótun skólanámskrár og í gangi er endurskoðun á skólastefnu sveitarfélagsins með skýrum viðmiðum um gæði skólastarfs.  

Helstu verkefni og ábyrgð við leikskólann Sólvelli:

  • Þátttaka í þróun leikskólastarfsins í samvinnu við stjórnendur og starfsfólk.
  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
  • Þátttaka í skipulagningu á faglegu starfi og foreldrasamstarfs.
  • Mikið er lagt upp úr foreldrasamvinnu og góðum samskiptum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi
  • Góð íslenskukunnátta 
  • Hreint sakavottorð

Starfssvið:

  • Starfar skv. lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu sveitarfélagsins.
  • Vinnur að uppeldi og menntun barna samkvæmt stefnu leikskólans og sem birtist í skólanámskrá.

Umsóknarfrestur er til og með 5. apríl 2024

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veitir Margrét Sif Sævarsdóttir, leikskólastjóri í síma 4386645 á milli kl. 10:00 – 14:00 alla virka daga eða á netfangið margretsif@gfb.is

Umsóknum um starfið skal fylgja greinargott yfirlit yfir menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað sem umsækjandi telur máli skipta. Einstaklingar af öllum kynjum er hvattir til að sækja um.

Vinsamlegast athugið að Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að fara fram á sakavottorð umsækjenda.

Sótt er um starfið hér