Í mars 2013 mun Grundapol, Vinabæjarfélag Paimpol-Grundarfjarðar í Frakklandi, halda upp á 10 ára afmæli samstarfs milli Paimpol og Grundarfjarðar.

Glæsileg helgi er í vændum og hefur m.a. fyrrverandi forseta Íslands, Vigdísi Finnbogadóttur verið boðið til þessarar hátíðar. Þá mun sendiherra Íslands í Frakklandi, Berglindi Ásgeirsdóttur, og Grundfirðingum öllum vera boðið til Paimpol. Hátíðin verður haldin helgina 15.- 17. mars nk.

Þeir sem hafa áhuga á að slást með í ferð til Paimpol er bent á að senda tölvupóst til Johönnu, johanna@fsn.is .