Vinahúsið sem Grundafjarðardeild Rauði Krossins starfrækti s.l. vetur í samstarfi við Verkalýðsfélagið, Grundafjarðarbæ og Vinnumálastofnun mun hefja vetrarstarf sitt nú um mánaðarmótin. Til að styrkja starfsemina mun Vinahúsið hafa kaffisölu í húsi Verkalýðsfélagsins Borgabraut 2 n.k. föstudag 24. September. Kl. 14-16

Fólk er hvatt til að koma, fá sér kaffi og meðlæti og kynnast starfssemi Vinahússins.

Starfsemin er ætluð fyrir alla þá sem hafa dottið út úr hlutverkum sínum í lífinu, vegna veikinda, slysa eða annarra áfalla eins og atvinnumissis..