Grundarfjarðarhöfn leitar eftir starfsmanni til afleysinga við höfnina.   Starfið felst í móttöku og afgreiðslu skipa, vigtun og skráningu sjávarafla og almennri umhirðu hafnarsvæðis.

Daglegur vinnutími er í samræmi við opnunartíma hafnarinnar.  Vegna komu og brottfarar skipa getur þurft að vinna utan opnunartíma.

Laun eru samkvæmt launakerfi sveitarfélaga.  Umsóknarfrestur er til og með 18. maí 2010.

Nánari upplýsingar gefur Hafsteinn Garðarson, hafnarvörður á staðnum eða í síma 438-6705.

Grundarfjarðarhöfn