Vinnuskóli sumarið 2023

 

Vinnuskóli Grundarfjarðarbæjar verður starfræktur frá 5. júní til 7. júlí, alls í fimm vikur, fyrir elstu fjóra árganga grunnskólans. Vinnutími er 6 tímar á dag á virkum dögum, nema á föstudögum, þá er unnið í 5 tíma. 

Vinnuskólinn er sambland af námi og starfi, fræðslu og hvatningu. Vinnuskólinn er fyrsti vinnustaður mjög margra. Við leitumst sérstaklega við að vanda fræðslu, efla frumkvæði nemenda og áhuga þeirra fyrir umhverfi sínu og fyrir starfinu, að kenna rétt vinnubrögð og fagna góðu verki.

Þau sem taka þátt í allri dagskrá vinnuskólans fá greidd laun í samræmi við mætingu. Í lokin verður síðan skemmtilegt lokahóf.

Allir nemendur Vinnuskóla Grundarfjarðarbæjar fá umsögn um frammistöðu sína að sumarstarfi loknu. Atriði sem skipta máli í matinu eru: frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi, tillitssemi og samvinna, hæfni til að taka fyrirmælum, vandvirkni, afköst og meðferð verkfæra.

Gunnar Andri Pétursson hefur verið ráðinn umsjónarmaður vinnuskóla Grundarfjarðarbæjar í sumar.  Gunnar Andri er íþróttakennari við Grunnskóla Grundarfjarðar og hefur margra ára reynslu af því að vinna með ungu fólki.

Við hlökkum til skemmtilegs og uppbyggilegs sumars með Gunnari Andra og vinnuskólanum okkar!

Sjá nánar um Vinnuskólann 2023 - reglur og starfskjör

 

Laun 2023 eru þannig:

 

Tímakaup

7. bekkur (fæðingarár 2010)

1.100 kr.

8. bekkur (fæðingarár 2009)

1.222 kr.

9. bekkur (fæðingarár 2008)

1.467 kr.

10. bekkur (fæðingarár 2007)

1.711 kr.

 

Umsóknareyðublöð má nálgast hjá skólaritara grunnskólans, á bæjarskrifstofu eða prenta út hér.

Mikilvægt er að skila inn umsókn í síðasta lagi 24. maí nk. Það má skila inn umsóknum rafrænt á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is, eða skila útfylltu blaði á bæjarskrifstofu eða til skólaritara. 

Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofunni í síma 430 8500 (milli 10-14 virka daga) eða hjá Gunnari Andra umsjónarmanni vinnuskólans í síma 824 8921. 

 

Vinnuskóli Grundarfjarðarbæjar