Sumarið 2013 verður Vinnuskóli Grundarfjarðar starfræktur frá 3. júní  til 5. júlí, alls í fimm vikur. Boðið er upp á meiri vinnu og hærri laun en áður. Nú stendur unglingum til boða að vinna í allt að 168 klst. Vinnuskólinn er fyrir unglinga sem lokið hafa 8., 9. og 10. bekk.

Vinnuskólinn er sambland af námi og starfi. Þeir sem taka þátt í allri dagskránni fá greidd laun fyrir fræðsludaga. Í lokin verður síðan vegleg grillveisla.

Klæðnaður skal hæfa veðri og eðli vinnunnar. Helstu verkefni verða fegrun umhverfisins og vinna tengd gróðri.

Umsóknarfrestur er til 25. maí. Umsóknareyðublöð liggja hjá skólaritara grunnskólans og á bæjarskrifstofunni.

Reglur um vinnuskólann eru á vef Grundarfjarðarbæjar. Unglingar, foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að kynna sér reglurnar.

Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður umsjónarmaður vinnuskólans í síma 690 6559.

 

Vinnuskóli Grundarfjarðar