Sumarið 2018 verður Vinnuskóli Grundarfjarðar starfræktur frá 4. júní til 9. júlí, alls í fimm vikur. Vinnuskólinn er fyrir unglinga sem lokið hafa 8., 9. og 10. bekk.

Nemendur hafa þegar fengið umsóknareyðublöð afhent í skólanum en einnig má nálgast þau hér og skila á bæjarskrifstofu.

Vinnutíminn er: Mánudaga til föstudaga, kl. 8:00-12:00 og 13:00-16:00.

Vinnuskólinn er sambland af námi og starfi. Þeir sem taka þátt í allri dagskránni fá greidd laun fyrir fræðsludaga. Í lokin verður síðan vegleg grillveisla.

Allir nemendur Vinnuskóla Grundarfjarðar fá umsögn um frammistöðu sína að sumarstarfi loknu. Atriði sem skipta máli í matinu eru: Stundvísi, framkoma, hæfni til að taka fyrirmælum, vandvirkni, sjálfstæði í vinnubrögðum, samvinna, afköst og meðferð verkfæra.

 

Klæðnaður skal hæfa veðri og eðli vinnunnar. Helstu verkefni verða fegrun umhverfisins og vinna tengd gróðri.

Umsóknarfrestur er til 25. maí 2018. Umsóknareyðublöð liggja hjá skólaritara grunnskólans og á bæjarskrifstofunni.

Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður D. Benidiktsdóttir, umsjónarmaður vinnuskólans, í síma 690 6559.