Vinnuskóli sumarið 2020 – 7. bekkur

Vinnuskóli Grundarfjarðarbæjar er starfræktur frá 8. júní til 10. júlí, alls í fimm vikur.
Vinnutími er 6 tímar á dag á virkum dögum, nema á föstudögum, þá er unnið í 5 tíma.

Í ár er 7. bekk (börnum fæddum 2007) boðið að bætast í hópinn og taka þátt í starfi vinnuskólans í allt að 3 vikur, þ.e. frá mánudeginum 15. júní til föstudags 3. júlí nk.

Vinnuskólinn er sambland af námi og starfi, fræðslu og hvatningu. Vinnuskólinn er fyrsti vinnustaður mjög margra. Við leitumst sérstaklega við að vanda fræðslu, efla frumkvæði nemenda og áhuga þeirra fyrir umhverfi sínu, að kenna rétt vinnubrögð og fagna góðu verki.

Laun fyrir 7. bekk eru 936 kr. á klst.

Þau sem taka þátt í allri dagskrá vinnuskólans fá greidd laun fyrir fræðsludaga. Í lokin verður síðan skemmtilegt lokahóf.

Allir nemendur Vinnuskóla Grundarfjarðarbæjar fá umsögn um frammistöðu sína að sumarstarfi loknu. Atriði sem skipta máli í matinu eru: frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi, tillitssemi og samvinna, hæfni til að taka fyrirmælum, vandvirkni, afköst og meðferð verkfæra.

Sjá nánar um Vinnuskólann 2020 - reglur og starfskjör - hér á vefnum, undir fræðslumál

Umsóknareyðublöð má nálgast á bæjarskrifstofunni eða prenta út hér (undir "Skólar") – og má skila á bæjarskrifstofuna eða með því að senda undirritað afrit á grundarfjordur@grundarfjordur.is í síðasta lagi á hádegi föstudag 12. júní.

Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofunni í síma 430 8500 (milli 10-14 virka daga) eða hjá Vítor Vieria Thomas, umsjónarmanni vinnuskólans, í síma 848 3099. 

 

Vinnuskóli Grundarfjarðarbæjar