Krakkar í vinnuskólanum fagna vel unnu verki, sumarið 2019. 
Mynd: Helga Sjöfn Ólafsdóttir.
Krakkar í vinnuskólanum fagna vel unnu verki, sumarið 2019.
Mynd: Helga Sjöfn Ólafsdóttir.

Sumarið 2020 verður Vinnuskóli Grundarfjarðarbæjar starfræktur frá 8. júní til 10. júlí, alls í fimm vikur fyrir elstu þrjá árganga grunnskólans. Vinnutími er 6 tímar á dag á virkum dögum, nema á föstudögum, þá er unnið í 5 tíma.

Vinnuskólinn er sambland af námi og starfi, fræðslu og hvatningu. Vinnuskólinn er fyrsti vinnustaður mjög margra. Við leitumst sérstaklega við að vanda fræðslu, efla frumkvæði nemenda og áhuga þeirra fyrir umhverfi sínu, að kenna rétt vinnubrögð og fagna góðu verki.

Þau sem taka þátt í allri dagskrá vinnuskólans fá greidd laun fyrir fræðsludaga. Í lokin verður síðan skemmtilegt lokahóf.

Allir nemendur Vinnuskóla Grundarfjarðarbæjar fá umsögn um frammistöðu sína að sumarstarfi loknu. Atriði sem skipta máli í matinu eru: frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi, tillitssemi og samvinna, hæfni til að taka fyrirmælum, vandvirkni, afköst og meðferð verkfæra.

Sjá nánar um Vinnuskólann 2020 - reglur og starfskjör - hér á vefnum, undir fræðslumál

Laun 2020 eru þannig:

 Árgangur

Tímakaup

8. bekkur (fæðingarár 2006)

1.039 kr.

9. bekkur (fæðingarár 2005)

1.247 kr.

10. bekkur (fæðingarár 2004)

1.455 kr.

 

Umsóknareyðublöð má fá hjá skólaritara grunnskólans, á bæjarskrifstofunni eða prenta út hér (undir "Skólar").

Mikilvægt er að skila inn umsókn á bæjarskrifstofuna eða til skólaritara í síðasta lagi föstudag 29. maí nk.

Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofunni eða hjá Vítor Vieria Thomas, umsjónarmanni vinnuskólans, í síma 848 3099. 

 

Vinnuskóli Grundarfjarðarbæjar