Vinnuskólinn mun hefja starfsemi miðvikudaginn 3. júní 2009. Vinnuskólinn starfar í tveimur tímabilum, fyrra tímabilið verður frá 3. júní til 7. júlí að báðum dögum meðtöldum. Seinna tímabilið verður frá 30. júní til 30. júlí að báðum dögum meðtöldum. Þátttakendum verður skipt niður á tímabil eftir að skráningu lýkur. Unnið verður mánudaga til fimmtudaga kl. 08:30-12:00.

Vinnuskólinn er fyrir börn fædd árin 1993, 1994 og 1995.

 

Klæðnaður skal hæfa veðráttu og eðli vinnunnar. Helstu verkefni verða fegrun umhverfisins og vinna tengd gróðri.

 

Skráning fer fram á bæjarskrifstofunni, Grundargötu 30 og lýkur þann 22. maí.

 

Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá umsjónarmanni í síma 695 2198.

 

Vinnuskóli Grundarfjarðarbæjar.