Innviðaráðuneytið , í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, býður íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman

Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkum ráðuneytisins. Meginviðfangsefni þeirra verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður nýsamþykkt byggðaáætlun kynnt.

Öllum er velkomið að taka þátt í fjarfundunum, sem flestir eru haldnir milli kl. 15:00-17:00 á auglýstum fundardögum. Fundirnir verða haldnir í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams en skráning fer fram hér að neðan. Skráningu lýkur daginn fyrir hvern fund. Þátttakendur fá boð í tölvupósti til að tengja sig á fundina.

Fundurinn fyrir íbúa á Vesturlandi verður 26. október nk. kl 15-17 

Skráning á fundinn

Reglulegt samráð

Samráðsfundirnir verða ekki eina tækifæri íbúa til að hafa áhrif á stefnumótun ráðuneytisins. Stöðumat og valkostir (þ.e. grænbók) og drög að stefnu (þ.e. hvítbók) verða til að mynda birtar í samráðsgátt stjórnvalda. Þar gefst öllum tækifæri til að senda inn umsagnir og ábendingar.

Einnig er hægt að senda inn ábendingar í tengslum við þessa fundi á netfang ráðuneytisins –irn@irn.is

Tengill á stjórnarráðið: https://www.stjornarradid.is/raduneyti/innvidaraduneytid/radstefnur-og-fundir/vordum-leidina-saman-/