Helgina 11.-12. maí 2013 verður hreinsunarhelgi í Grundarfirði. Allir eru hvattir til hreinsunar á sinni lóð og nánasta umhverfi.

 

Þess er óskað að íbúar sópi gangstéttir fyrir framan húsið sitt og út á götu og týni upp rusl í kringum heimili sitt. Götusópur mun sópa götur bæjarins mánudaginn 13. maí.

 

Gámastöðin verður opin lengur laugardaginn 11. maí eða frá kl. 12:00-16:00. Gámur fyrir garðaúrgang er aðgengilegur allan sólarhringinn.

 

Tökum höndum saman og gerum bæinn okkar snyrtilegan fyrir sumarið.