Menningar- og markaðsfulltrúi

Grundarfjarðarbær auglýsir lausa til umsóknar nýja stöðu menningar- og markaðsfulltrúa. Um er að ræða 100% starf. Starfið er laust nú þegar.   Leitað er eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn að þróa nýtt starf á traustum grunni.   Helstu verkefni: ·         Rekstrarstjórn menningarhúss Grundarfjarðar. ·         Kynningar- og markaðsmál. ·         Umsjón með menningarviðburðum og vinabæjarsamskiptum.   Menntunar- og hæfniskröfur: ·         Háskólamenntun eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi. ·         Metnaður, hugmyndaauðgi, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar. ·         Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar. ·         Hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti á íslensku og ensku . Frekari tungumálakunnátta er mikill kostur.   Upplýsingar um starfið veitir Björn Steinar Pálmason, bæjarstjóri – bjorn@grundarfjordur.is eða í síma 4308500. Umsókn á að fylgja greinargóð starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir sendist í ofangreint netfang fyrir 25. apríl nk.   Grundarfjarðarbær

Kjörskrá Grundarfjarðarbæjar vegna alþingiskosninga

Kjörskrá Grundarfjarðarbæjar vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013 verður lögð fram 17. apríl næstkomandi. Til kjördags mun kjörskráin liggja frammi til skoðunar á bæjarskrifstofunni, Grundargötu 30, á opnunartíma skrifstofunnar, mánudaga-föstudaga kl. 10-14.   Hægt er að gera athugasemdir við kjörskrá fram á kjördag og skal senda erindi þess efnis til bæjarstjórnar.   Nánari upplýsingar um kosningarnar má finna á kosningavef innanríkisráðuneytisins, www.kosning.is   Bæjarstjórinn í Grundarfirði    

Sumarstörf í áhaldahúsi

Laus eru til umsóknar sumarstörf í áhaldahúsi Grundarfjarðar: Umsækjendur þurfa að vera 16 ára eða eldri, hafa verkvit og áhuga á útiveru, vera reyklausir og sjálfstæðir í vinnubrögðum.   Vinnutími er frá miðjum maí til ágústloka.   Sækja um sumarsarf í áhaldahúsi. Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl nk.   Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofunni í síma 430 8500. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á grundarfjordur@grundarfjordur.is

Hátíðarfélag Grundarfjarðar auglýsir

Hátíðarfélag Grundarfjarðar auglýsir eftir framkvæmdarstjóra hátíðarinnar fyrir árið 2013. Starfið felst í að skipuleggja og stjórna hátíðinni Á góðri stund í Grundarfirði,öflun styrkja og umsjón með hátíðinni. Leitað er eftir hugmyndaríkum og duglegum einstaklingum.   Umsóknum skal skilað fyrir 20. apríl. Umsóknir og fyrirspurnir skal senda á netfangið Grundargata86@bref.is.   Stjórnin.    

Bæjarstjórnarfundur

159. fundur bæjarstjórnar Grundarfjarðar verður haldinn í Samkomuhúsinu, fimmtudaginn 11. apríl 2013, kl. 16:30.   Dagskrá:   

Morgunsund vorið 2013

Meðan á skólasundi stendur verður sundlaugin opin almenningi milli kl. 7:00-8:00 á morgnana frá mánudeginum 8. apríl 2013.   

Ræstingastarf

Grundarfjarðarbær óskar eftir að ráða sem fyrst starfsmann til að sinna ræstingu á einni af húseignum bæjarins. Um er að ræða 26 klst. á mánuði og tímabundna ráðningu til haustsins. Vinnutími er sveigjanlegur.   Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofu í síma 430 8500 eða á netfangi grundarfjordur@grundarfjordur.is   Umsóknarfrestur er til 8. apríl nk.   Sækja um ræstingastarf.  

Nýr opnunartími gámastöðvar

Frá mánaðamótum breytist opnunartími gámastöðvarinnar. Framvegis verður opið á mánudögum og fimmtudögum kl. 16:30 -18:00 og á laugardögum kl. 12:00-14:00.