Horft til framtíðar með endurskoðun aðalskipulags

    Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar horfir til framtíðar og fylgir svæðisskipulagi eftir með því að marka nánari stefnu í aðalskipulagi sínu um umhverfi fólks og fyrirtækja.   Grundarfjarðarbær hefur samið við ráðgjafarfyrirtækið Alta um endurskoðun aðalskipulags bæjarins. Skrifað var undir samning þar að lútandi föstudaginn 8. janúar sl., með hefðbundnum fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.  

Fyrirlestur í kvöld með landsliðsþjálfara frá KSÍ

Nemendur í 7.-10. bekk hlustuðu á Halldór Björnsson í skólanum í morgun. Þar lagði hann áherslu á hvað þarf til að ná árangri í lífinu.   Halldór Björnsson þjálfari U-17 landsliðs karla í knattspyrnu er staddur í Grundarfirði í dag. Í morgun ræddi hann við nemendur í 7.-10. bekk Grunnskóla Grundarfjarðar um hvað þarf til að ná árangri í íþróttum og lífinu almennt.   Í kvöld kl 20 verður Halldór með fyrirlestur í Sögumiðstöð þar sem hann fjallar um hvað þarf til að ná árangri í knattspyrnu, fyrirmyndir, undirbúning fyrir landsliðsæfingar og hæfileikamótun og fleira. Allir eru velkomnir á fyrirlesturinn og þá sérstaklega knattspyrnuiðkendur, foreldrar og þjálfarar.  

Kynningarfundur um vetrarferðaþjónustuverkefni á Snæfellsnesi

   Ferðaþjónustuaðilar með vetraropnun eru sérstaklega boðnir velkomnir á þennan fund þar sem farið verður yfir málefni vetrarferðaþjónustu á Snæfellsnesi. Öll fyrirtæki sem skráð eru á Snæfellsnesi, eru með gilt starfsleyfi í viðkomandi grein og bjóða upp á þjónustu fyrir ferðamenn á lágönn, geta verið með í því kynningarefni sem búið verður til. Lágönn telst til tímabilsins frá 1. október til 1. maí. Verkefnið er þátttakendum að kostnaðarlausu.  

Jólin kvödd með glæsibrag

    Það var vel mætt til árlegrar þrettándabrennu Grundarfjarðarbæjar í Hrafnkelsstaðabotni í Kolgrafarfirði og þar voru jólin kvödd með glæsibrag. Grundfirðingar láta ekki smá vindhviður á sig fá og mættu kappklæddir og galvaskir til þessarar fínu brennu.

Hreystivika í Grundarfirði 11.-17. janúar 2016

      Heilbrigð sál í hraustum líkama!   Hreystivika verður haldin í Grundarfirði vikuna 11.-17. janúar, þriðja árið í röð. Tilgangur hreystivikunnar er að vekja athygli á og efla almennt heilbrigði og hreysti bæjarbúa, jafnt líkamlegt sem andlegt. Á baksíðu Jökuls er dagskrá vikunnar sem er samsett með það í huga að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi.    

Augnlæknir

Augnlæknir Guðrún Guðmundsdóttir augnlæknir verður með móttöku á HVE Grundarfirði fimmtudaginn 28. janúar n.k. tekið er á móti tímapöntunum á Heilsugæslustöð Grundarfjarðar, sími 432 1350.    

Aukinn jöfnuður húshitunarkostnaðar

Frá áramótum mun kostnaður við flutning og dreifingu á raforku til hitunar íbúðarhúsnæðis hjá þeim sem búa á svæðum þar sem ekki er hitaveita lækka verulega og verða niðurgreiddur að fullu frá og með 1. apríl 2016. Þetta er í samræmi við breytingu á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar sem iðnaðar- og viðskiptaráðherra beitti sér fyrir og samþykkt var á Alþingi sl. vor.     Frá 1. janúar munu niðurgreiðslur á kostnaði við flutning og dreifingu raforku nema um 90% - og frá og með 1. apríl munu niðurgreiðslurnar greiða að fullu fyrir dreifingu raforku sem notuð er til húshitunar. Með þessu er stigið stórt skref til jöfnunar húshitunarkostnaðar um land allt hjá notendum sem ekki eiga kost á hitun húsnæðis með jarðvarma.    Spennandi verður að sjá hversu mikil breytingin verður á reikningum heimilanna. Hér er væntanlega um að ræða fyrsta skrefið í því að jafnahúshitunarkostnað á svokölluðum köldum svæðum.   Þetta kemur fram á vef Atvinnuvega- og Nýsköpunarráðuneytisins.