Breyting á deiliskipulagi Mýrarhúsa.
Breyting á deiliskipulagi Mýrarhúsa
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti á 315. fundi sínum þann 15. október sl. að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Mýrarhúsa skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010. Áður hafði skipulags- og umhverfisnefnd fjallað um tillöguna á 282. fundi sínum þann 7. október sl.. Breytingin felst í því að bætt er við einni sumarbústaðalóð. Lóðin er 1.050 m2 og er heimilt að reisa á henni 95 m2 frístundahús. Fyrir eru sex frístundahús á Mýrarhúsum. Deiliskipulag Mýrarhúsa var samþykkt 2. júní 2000 og tók breytingum 25. október 2026. Skipulagsbreytingin er í samræmi við Aðalskipulag Grundarfjarðar 2019-2039. Það tilheyrir svæðinu Frístundabyggð F-1. Gert er ráð fyrir allt að 21 frístundahúsi á skipulagssvæðinu í heild.
Sótt verður um undanþágu frá gr. 5.3.2.14 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 vegna fjarlægðar frá vatni. Fyrirhugað er að frístundahús standi 30 metra frá Lárvaðli, þ.e. innan við 50 metra frá vatni. Það er í samræmi við byggð á svæðinu. Um sex metra hár bakki er við vatnið og myndar hann skörp skil milli túns og fjöru. Skipulags- og umhverfisnefnd hefur fyrir sitt leyti fallist á rökstuðning fyrir staðsetningu hússins.
Þau sem telja sig hafa hagsmuna að gæta vegna skipulagsins eru hvött til að kynna sér tillöguna á Skipulagsgátt á slóðinni
https://skipulagsgatt.is/issues/2026/1314. Tillagan liggur einnig frammi í Sögumiðstöð og í Ráðhúsi Grundarfjarðar. Athugasemdir og ábendingar skal senda í Skipulagsgátt á umsagnartíma. Frestur til að skila umsögnum er til 30. desember nk.
Skipulagsfulltrúi Grundarfjarðarbæjar