- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Ráðning aðstoðarleikskólastjóra
Elísabet Kristín Atladóttir hefur verið ráðin aðstoðarleikskólastjóri Leikskólans Sólvalla. Hún er fædd og uppalin á Suðurlandi en hefur búið í Grundarfirði frá árinu 2011. Elísabet er með MT. og B.Ed gráðu í leikskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands. Hún starfaði áður við leikskólana hér í Grundarfirði, var deildarstjóri á Sólvöllum árin 2016-2019 og kennari á leikskóladeildinni Eldhömrum árin 2020-2023. Frá árinu 2023 hefur hún verið kennari við Grunnskóla Grundarfjarðar.
Starf aðstoðarleikskólastjóra, sem auglýst var 22. mars sl., innifelur nýja samsetningu verkefna, til að styrkja enn frekar leikskólastarfið. Helstu verkefni Elísabetar í leikskólanum verða umsjón með sérkennslu og stuðningi, farsæld barna og stjórnun auk þess sem hún verður faglegur leiðtogi yfir útikennslu, sem leikskólinn leggur sérstaka áherslu á.
Leikskólinn Sólvellir er þriggja deilda leikskóli og tekur inn börn við 12 mánaða aldur og uppí 4ra ára, en þá tekur við fimm ára leikskóladeild, Eldhamrar, sem starfar í tengslum við grunnskólann. Skólar Grundarfjarðarbæjar vinna að innleiðingu nýsamþykktrar menntastefnu Grundarfjarðarbæjar 2023-2028, sem er leiðarvísir um áherslur og vinnubrögð sem samfélagið hefur ákveðið að stefna að á komandi árum í skólastarfi og með öðrum þeim er að uppeldi og menntun barna koma.
Elísabet tekur við starfi aðstoðarleikskólastjóra um miðjan júní og býður Grundarfjarðarbær hana velkomna til nýrra starfa.