Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst lýsing fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu.

 

Lýsing vegna breytingar aðalskipulags þéttbýlis Grundarfjarðarbæjar 2003-2015, Hafnarsvæði.

 

Fyrirhugðu breyting er á Hafnar- og iðnaðarsvæði við Grundarfjarðarhöfn og á Framnesi. Fyrirhugað er að minnka hafnarsvæði að norðan og breyta í iðnaðarsvæði og athafnarsvæði. Einnig er gert ráð fyrir að breyta iðnaðarsvæði á Framnesi í athafnarsvæði. Götur á fyllingu við sjó verði einnig lagfærðar til samræmis við staðfest deiliskipulag af svæðinu.

Lýsingin verður aðgengileg á vef Grundarfjarðar, (klikka hér) og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Grundargötu 30 á skrifstofutíma frá 10-14 frá 1. júlí til 15. júlí 2015 og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, hvattir til að kynna sér lýsinguna og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri, skriflega á Grundarfjarðarbæ, Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður eða á netfangið bygg@grundarfjordur.is  í síðasta lagi 15.júlí 2015.

 

Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Grundarfirði.