Hafnarsjóður festir kaup á Nesvegi 4

 

Undirritað var í dag skuldbindandi tilboð þar sem Grundarfjarðarhöfn festir kaup á fasteigninni að Nesvegi 4, Grundarfirði. Seljandi húss er Fiskmarkaður Snæfellsbæjar ehf. Um er að ræða atvinnuhúsnæði, alls 4.786,4 m2, sem hýsti Hraðfrystihús Grundarfjarðar, en árið 1996 keypti Fiskiðjan Skagfirðingur (síðar FISK Seafood) húsið. Upphaflegi hluti hússins var byggður 1941, en húsið var síðar stækkað og því breytt í áranna rás. Lóð hússins er ríflega 7200 m2 að flatarmáli. 

Fasteignin að Nesvegi 4, Grundarfirði var auglýst til sölu hjá fasteignasölunni Re/Max þann 28. janúar sl. og hafa viðræður um kaupin staðið yfir síðan í lok janúar. Kaupverð er 30 milljónir króna sem greiðist þegar kemur að undirritun kaupsamnings.

Tilgangur hafnarinnar með kaupum á húsinu er að tryggja framtíðaruppbyggingu á þessari góðu lóð, alls 7200 m2, alveg við Norðurgarð, meginviðlegukant og athafnasvæði hafnarinnar. Grundarfjörður hefur byggst upp sem sjávarþorp og fjölbreytt starfsemi fylgir því að hér eru afar góðar hafnaraðstæður frá náttúrunnar hendi, góð hafnarmannvirki hafa verið byggð upp og þjónusta hafnar og þjónustuaðila er lipur og góð. Sýn hafnarstjórnar er að gamla frystihúsið muni í framtíðinni víkja fyrir nýrri byggingu eða byggingum og lóðin fái nýtt hlutverk. Hér er því um framtíðarfjárfestingu að ræða. 

Ákvarðanir hafnarstjórnar og bæjarstjórnar um kaupin voru staðfest á fundum fyrr í vikunni. 
Hér má sjá fundargerð hafnarstjórnar 17. febrúar 2026.
Hér má lesa fundargerð bæjarstjórnar 17. febrúar 2026.