Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Grundarfjarðarbær óskar eftir fulltrúum til tilnefningar í ungmennaráð.  

Í ungmennaráði eiga sæti fimm fulltrúar á aldrinum 15-21 árs, sem íþrótta- og æskulýðsnefnd tilnefnir og bæjarstjórn staðfestir skv. ákvæðum sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar. Í ráðinu sitja fimm aðal- og fimm varamenn.

Nefndarmenn fá greidda þóknun fyrir fundarsetu. 

Áhugasöm gefa haft samband við bæjarskrifstofu í síma 430-8500 eða sent póst á grundarfjordur@grundarfjordur.is

Hlutverk ungmennaráðs er:

  • Að koma tillögum og skoðunum ungs fólks til skila til viðeigandi aðila í stjórnkerfi sveitarfélagsins.
  • Að vera bæjaryfirvöldum til ráðgjafar varðandi aðstöðusköpun og afþreyingarmöguleika.
  • Að þjálfa ungt fólk í lýðræðislegum vinnubrögðum og auka tengsl þess við stjórnkerfi sveitarfélagsins.
  • Ungmennaráð starfar með og undir leiðsögn íþrótta- og æskulýðsnefndar.

Auk þess er Grundarfjarðarbær að hefja vinnu við innleiðingu sem barnvænt sveitarfélag og gefst ungmennum því kjörið tækifæri til að taka þátt í þeirri skemmtilegu vinnu!

Erindisbréf fyrir ungmennaráð Grundarfjarðarbæjar