- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Á 315. fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar samþykkti bæjarstjórn samhljóða að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 verði miðað við að gjaldskrár til heimila hækki að hámarki um 2,5%.
Málið á rætur að rekja til ályktunar landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga um stöðu efnahagsmála. Þar lýsa sveitarfélögin vilja til að leggja sitt af mörkum til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa að hámarki 2,5% árið 2027.
Bókun bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar er svohljóðandi:
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkir að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 verði miðað við að gjaldskrár sem lagðar eru á heimili hækki að hámarki um 2,5%.
Bæjarstjórn felur bæjarstjóra og skrifstofustjóra að vinna tillögur að gjaldskrám ársins 2027 á grundvelli þessarar stefnumörkunar og leggja fyrir bæjarstjórn samhliða fjárhagsáætlun.
Með samþykktinni hefur bæjarstjórn sett skýrt viðmið fyrir áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun og gjaldskrár sveitarfélagsins fyrir árið 2027.
Fjárhagsáætlun Grundarfjarðarbæjar er nú í vinnslu.