Á 224. fundi skipulags- og umhverfisnefndar þann 27. janúar sl. var skipulags- og byggingarfulltrúa falið að grenndarkynna fyrirhuguð byggingaráform á lóðinni Fellabrekku 5 í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um nýbyggingu er að ræða á auðri lóð sem úthlutað var í mars 2020.

Grenndarkynning þessi er byggð á 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem kveðið er á um að [...] þegar sótt er um byggingarleyfi sem er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar í þegar byggðu hverfi og deiliskipulag liggur ekki fyrir, skal skipulagsnefnd láta fara fram grenndarkynningu [...].

Samkvæmt aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar er lóðin á svæði sem ætlað er fyrir íbúðarlóðir, en svæðið hefur þó ekki verið útfært nánar í deiliskipulagi.

Í grenndarkynningu felst að nágrönnum, sem hagsmuna eiga að gæta, að mati umhverfisnefndar, er kynnt málið skriflega og gefinn kostur á að tjá sig um það, innan ákveðins frests sem skal vera a.m.k. fjórar vikur. 

Hér er hægt að sjá afstöðumynd og útlit fyrirhugaðra framkvæmda.

Kynningarbréf hafa verið send til íbúa í Fellabrekku 3, Hellnafelli 2 og Hellnafelli 4 og gefst þeim frestur til 5. mars 2021 að gera athugasemdir. Berist engar athugasemdir innan þessara 4 vikna telst það sem samþykki fyrir nefndinni.

Skila skal inn athugasemdum í Ráðhús Grundarfjarðarbæjar, Borgarbraut 16 eða á bygg@grundarfjordur.is, merkt "Fellabrekka 5".

Heimilt er að stytta tímabil grenndarkynningar berist undirritað samþykki íbúa sem kynningarbréf fengu, sbr. 3. mgr. 44. gr, skipulagslaga nr. 123/2010.

Byggingarfulltrúi Grundarfjarðarbæjar