- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Grundarfjarðarbær auglýsir lausar til úthlutunar allt að 14 nýjar íbúðarhúsalóðir í Ölkeldudal og 4 eldri lóðir með breyttu skipulagi, auk þess a.m.k. sex atvinnulóðir á iðnaðarsvæði vestan Kvernár. Eldri lóðir eru til úthlutunar með afslætti af gatnagerðargjöldum fram til áramóta.
Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl nk. (gildir fyrir allar lóðir skv. auglýsingunni, nema þær sem annað er sérstaklega tilgreint).
Sjá einnig hér - um lausar lóðir.
Hér með eru auglýstar lausar til úthlutunar nýjar og breyttar byggingarlóðir fyrir allt að 18 íbúðir við Hrannarstíg, Ölkelduveg og Fellasneið. Um er að ræða lóðir sem eru hluti af nýju deiliskipulagi Ölkeldudals. Þetta eru lóðir í næsta nágrenni við grunnskóla, íþróttahús og sundlaug, dvalarheimili, kirkju og miðbæ og í mikilli nánd við náttúruna. Lóðirnar eru fyrir raðhús, parhús og sérbýli. Þrjú raðhús eru ætluð íbúum 60 ára og eldri.
Ölkeldudalur er syðsti hluti þéttbýlisins og eru grunnskóli bæjarins, sundlaug og íþróttahús austasti hluti hverfisins. Hér erum við í mikilli nánd við náttúruna og allt uppland bæjarins er útivistarparadís. Þetta gildir það reyndar um allar lóðir í Grundarfirði – náttúran umlykur okkur og fegurðin blasir við í hverju fótmáli. Bakgarður raðhúsalóðanna við Ölkelduveg er Paimpol-garðurinn sem er grænt svæði og votlent. Garðurinn heitir eftir vinabæ Grundarfjarðar í Frakklandi. Ætlunin er að þar verði byggður upp sérstakur regngarður, sem hægt er að fræðast um í deiliskipulagi hverfisins.
Um er að ræða nýjar lóðir í eldra hverfi og eru þær flestar tilbúnar til afhendingar. Lóðir við Hrannarstíg 42-46 fylgja gatnagerð á aðkomuvegi sem útbúinn verður á vegum bæjarins að lóðunum sjálfum og að vesturinngangi Fellaskjóls. Á Ölkelduvegi þarf lítillega að breyta frágangi við götuna og verður það gert í samræmi við deiliskipulagið, þegar lóðir fara að byggjast upp.
Þetta eru lóðirnar sem um ræðir:
Nánari upplýsingar um skilmála hverrar lóðar má finna á lóðavef og í deiliskipulagi Ölkeldudals.
Eftirfarandi lóðir eru til úthlutunar með 50% afslætti af gatnagerðargjöldum, fram til 31. desember nk. :
Heimilt er að sækja sameiginlega um Fellabrekku 7-13, heimild er til að byggja á stakri lóð eða öllum saman, skv. nánari skilmálum aðalskipulags. Á Grundargötu 63 má ýmist byggja íbúðar- eða þjónustuhúsnæði. Ekki er til deiliskipulag fyrir þennan hluta bæjarins. Nánari upplýsingar um lóðirnar má finna á lóðavef.
Iðnaðarsvæðið vestan Kvernár hefur verið stækkað með gildistöku nýs deiliskipulags 2025.
Á svæðinu eru skilgreindar rúmlega 20 misstórar lóðir. Úthlutun þeirra er áfangaskipt, skv. ákvörðun bæjarstjórnar, sbr. það sem myndin hér fyrir neðan sýnir.
Svæðið er hentugt fyrir atvinnustarfsemi í bænum, skammt frá þéttbýlinu og höfninni og í beinum tengslum við þjóðveg 54, Snæfellsnesveg. Gatnagerð er fyrirhuguð á svæðinu og nánar má lesa um fyrirkomulag lóða og jarðvegs í deiliskipulagi svæðisins.
Þetta eru lóðirnar sem um ræðir:
Lóðum verður úthlutað í samræmi við Samþykkt um úthlutun lóða í Grundarfirði.
Um nýjar lóðir gildir að sæki fleiri en einn um lóð verður varpað hlutkesti um hver fær, að uppfylltum skilyrðum 2. gr. Eldri lóðir, sem áður hafa verið auglýstar, eru á lista yfir lausar lóðir og um þær gildir að „fyrstur kemur, fyrstur fær“. Þegar umsóknarfrestur lóða er út runninn, fara lóðir á þennan lista, hafi ekki verið sótt um þær.
Umsækjandi skal greiða staðfestingargjald fyrir hverja lóð sem hann sækir um og er það óafturkræft verði umsækjanda úthlutað lóð. Gjaldið var í mars sl. 69.500 kr., en verðbætist skv. gjaldskrá. Við úthlutun lóðar skal fyrirframgreiða hluta af gatnagerðargjaldi, eða 1.365.000 kr. skv. vísitölu í mars 2026. Eftirstöðvar gatnagerðargjalds eru svo greiddar við fokheldisúttekt í síðasta lagi. Gatnagerðargjöld miðast við fermetrastærð þeirrar byggingar sem heimilt er að byggja á lóðinni. Byggingarleyfisgjald greiðist við útgáfu byggingarleyfis og miðast við gjaldskrá byggingarleyfa eins og hún er við útgáfu byggingarleyfis, með verðtryggingu. Á þeim lóðum sem ekki eru deiliskipulagðar bætist við grenndarkynningargjald.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér samþykkt sveitarfélagsins um úthlutun lóða, samþykkt um gatnagerðargjald og um tímabundinn afslátt gatnagerðargjalda. Fyrirspurnum má beina á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is eða hafa samband við Ráðhús í síma 430 8500.