- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Rammahluti fyrir blágrænar ofanvatnslausnir og almenningsrými
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum fimmtudaginn 12. febrúar sl. að auglýsa vinnslutillögu fyrir gerð blágræns ofanvatnsskipulags í Grundarfirði í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða næsta stig skipulagsferlis fyrir rammahlutann, en áður var skipulagslýsing auglýst í október sl.
Þetta skipulag verður rammahluti Aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 og um leið stefnumótun fyrir þróun almenningsrýma í bænum. Verkefnið er liður í framfylgd stefnu aðalskipulagsins um innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna í öllum bænum, m.a. til að auka seiglu bæjarins gagnvart breytingum á veðri og loftslagi. Einnig er mótuð stefna um tilhögun fráveitu og meðferð ofanvatns í allri byggðinni.
Grundarfjarðarbær fékk styrk úr stóru Evrópusambandsverkefni sem nú stendur yfir á Íslandi. Verkefnið kallast LIFE-ICEWATER og styrkur bæjarins er ætlaður til þess að innleiða metnaðarfulla framtíðarsýn bæjarins í fráveitumálum, m.t.t. meðhöndlunar ofanvatns. Markmiðið er að Grundarfjörður verði fyrsta sveitarfélagið á landsvísu til að innleiða blágræna innviði í heilu þéttbýli og því er rammahluti aðalskipulags fyrir blágrænar ofanvatnslausnir lykilverkefni í innleiðingu LIFE-ICEWATER verkefnisins í bænum.
Rammahlutinn mun leggja línurnar fyrir skipulag og framkvæmdir í almenningsrýmum bæjarins, með bindandi skipulagsákvæðum sem nauðsynleg eru fyrir skilvirka meðhöndlun ofanvatns. Markmiðið er að flétta blágræna innviði sem geta tekið við og veitt ofanvatni á yfirborði saman við almenningsrými og aðra græna innviði Grundarfjarðarbæjar. Þetta mun gera bæinn grænni, meira aðlaðandi og þolnari gagnvart loftslagsbreytingum, auk þess sem mengun er hreinsuð úr ofanvatninu áður en það rennur út í sjó.
Tillaga að nýjum rammahluta aðalskipulags fyrir blágrænar ofanvatnslausnir verður kynnt á vinnslustigi á vefmiðlum Grundarfjarðarbæjar og í Skessuhorninu. Vinnslutillagan verður til sýnis í Ráðhúsi Grundarfjarðar og bókasafni bæjarins, og verður send helstu hagsmunaaðilum á svæðinu.
Vinnslutillagan er auglýst á tímabilinu 16. febrúar – 2. mars 2026. Ábendingar og athugasemdir við tillöguna skulu berast í síðasta lagi 2. mars 2026 í gegnum Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.
Fimmtudaginn 19. febrúar og laugardaginn 21. febrúar 2026 verður haldið opið hús í Sögumiðstöðinni til kynningar og samráðs um gerð endanlegrar tillögu. Þar verður einnig hægt að kynna sér blágrænar ofanvatnslausnir og ICEWATER verkefnið.
Hér má smella á skipulagsgreinargerð
Grundarfirði, 16. febrúar 2026.
Sigurður Valur Ásbjarnarson, skipulagsfulltrúi Grundarfjarðarbæjar