Rökkurlögin – Rafræn söngstund

Föstudaginn 30. október kl. 20 munum við birta Rökkurlögin á Youtube rás Grundarfjarðarbæjar.

Menningarnefnd leitaði til bæjarbúa um þátttöku í þessu verkefni og gekk það vonum framar. Við búum svo vel að eiga einstaklega hæfileikaríka og þátttökugjarna aðila sem hjálpuðu okkur að láta þetta verkefni verða að veruleika. Við færum þeim einstakar þakkir fyrir þeirra framlag til Rökkurlaga á Rökkurdögum.

Sjá nánar hér, á viðburðardagatali Grundarfjarðarbæjar.

Við leituðum eftir því að tengdir aðilar myndu syngja saman – mæðgur, systur, tengdir einstaklingar og úr varð þessi skemmtilega stund.

Óháð því hvort þú getur sungið eða ekki, þá hvetjum við ykkur eindregið til þess að syngja með, ykkur og öðrum til gleði.

Njótum samverunnar með fjölskyldunni, borðum góðan mat, poppum og kennum ungviðinu alkunn íslensk lög.

Er ekki einnig tilvalið að kveikja á seríunum, dimma ljósin og með kærleik – hlusta á rökkurlögin á Rökkurdögum.

Menningarnefnd