- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Að gefnu tilefni er áréttað að sækja þarf um stöðuleyfi vegna gáma á lóðum og öðrum svæðum innan sveitarfélagsins, og einnig þarf að sækja um stöðuleyfi vegna annarra lausafjármuna, þar á meðal báta. Ennfremur þarf leyfi frá bænum til að láta báta og lausafjármuni standa á landi í eigu bæjarins, eða upp að mörkum almannarýma, svosem vega eða gangstétta. Leyfi nágranna þarf að fylgja stöðuleyfisumsókn standi gámur eða bátur nærri lóðamörkum. Ennfremur er minnt á að stöðuleyfi gilda aðeins til eins árs og sækja þarf um að nýju að ári. Þetta byggir á ákvæðum gr. 2.6. í byggingarreglugerð 112/2012 og á við um alla lausafjármuni sem standa eiga lengur en tvo mánuði.
Grundarfjarðarbær hefur nýlega lækkað stöðuleyfisgjöld um 55%, úr tæplega kr. 130.000 í kr. 58.727.
Stöðuleyfi eru gefin út af byggingarfulltrúa. Sótt er um stöðuleyfi með rafrænum hætti í gegnum íbúagátt á heimasíðu Grundarfjarðarbæjar. Eftir innskráningu er farið í Umsóknir, þaðan á Tæknisvið og þar er sótt um stöðuleyfi. Umsókn þarf að fylgja einfaldur uppdráttur sem sýnir staðsetningu lausafjármunar á lóð. Einnig kann að þurfa samþykki nágranna ef viðkomandi hlutur er staðsettur nærri lóðamörkum, eða samþykki eiganda/lóðarhafa sé hinn ekki umsækjandi.
Hér er samþykkt bæjarins um stöðuleyfi. Athygli er vakin á 7. grein samþykktarinnar sem byggir á gr. 2.6.2 í byggingarreglugerð, en byggingarfulltrúi hefur heimild til að fjarlægja lausafjármuni á kostnað eiganda sé ekki sótt um stöðuleyfi.
Við minnum ennfremur á að hægt er að fá aðstöðu fyrir lausafjármuni á geymslusvæði Grundarfjarðarbæjar að Ártúni 4, en svæðið er læst og vaktað með öryggismyndavélum. Hér er gjaldskrá svæðisins.