- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Á 315. fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar, þann 15. október 2026, var lagt fram minnisblað bæjarstjóra um uppbyggingu leiguíbúða í Grundarfirði í samstarfi við Bjarg íbúðafélag.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að veita bæjarstjóra heimild til að hefja samstarf við Bjarg íbúðafélag og HMS um undirbúning uppbyggingar leiguíbúða í Grundarfjarðarbæ.
Bjarg íbúðafélag hefur sótt um stofnframlag til HMS vegna fyrirhugaðrar byggingar fjögurra íbúða raðhúss í Grundarfirði.
Framhald vinnu við fjölgun leiguíbúða
Grundarfjarðarbær hefur að undanförnu unnið að því að styrkja möguleika á auknu framboði leiguhúsnæðis í sveitarfélaginu. Í ágúst samþykkti bæjarráð að veita bæjarstjóra heimild til að sækja um aðild sveitarfélagsins að Brák íbúðafélagi.