- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Sunnudaginn 10. maí sl. undirrituðu Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir formaður Ungmennafélags Grundarfjarðar (UMFG), Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri og Hinrik Konráðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi Grundarfjarðarbæjar samstarfssamning sem gilda mun frá 2026-2029, að báðum árum meðtöldum.
Markmið samningsins er að tryggja öflugt íþrótta-, forvarna- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni ásamt því að styrkja starf UMFG. Áhersla er lögð á mikilvægi þess öfluga starfs sem fram fer innan UMFG fyrir samfélagið í heild og að öll börn og unglingar innan UMFG hafi jafnan aðgang og möguleika til íþróttaiðkunar, eins og segir í samningnum. Einnig verður leitast við að samþætta og auka samvinnu í nærumhverfinu til að skapa samfellu í skóla-, frístunda- og íþróttastarfi. Markvisst samstarf allra félaga og deilda, þar sem þarfir barnanna og unglinga eru í forgrunni, er forsenda þess að efla félagslegan styrkleika, eins og segir í samningnum.
Hlutverk beggja aðila er skilgreint í samningnum og útlistað í hverju stuðningur bæjarins felist á tímabilinu. Grundarfjarðarbær styður við starf UMFG m.a. með beinu fjárframlagi, með sérstöku fjárframlagi til starfandi meistaraflokks í blaki, með framlagi í formi aðstöðu fyrir starf félagsins, bæði í húsnæði á vegum bæjarins og á íþróttasvæðum, og einnig með annars konar stuðningi, s.s. aðgangi að námskeiðum o.fl.
Ungmennafélagið heldur úti mikilli breidd í íþróttastarfi fyrir börn og unglinga, m.v. félag og byggðarlag af okkar stærðargráðu. Umfangið hefur aukist mikið á undanförnum árum og í dag býður félagið upp á sjö íþróttagreinar, auk þess sem starfræktur er meistaraflokkur í blaki. Nýleg samantekt sýnir að 87,3% barna og ungmenna á aldrinum 6-16 ára í Grundarfirði tóku þátt í íþróttastarfi árið 2024, en til viðmiðunar var meðaltalið á Vesturlandi 76,3% og á landinu öllu 79,6%.
Nýjasta greinin hjá UMFG er píla, en mikil vinna hefur verið lögð í það í vetur að setja upp píluaðstöðu í húsnæði sem bærinn leggur félaginu til, að Grundargötu 30. Stjórnarmenn UMFG hafa leitt þá vinnu af krafti og er hún langt á veg komin. Við það hafa þau notið öflugs liðsinnis fjölda sjálfboðaliða, m.a. iðnaðarmanna bæjarins.
Fylgjandi auknum umsvifum UMFG hefur álag og ábyrgð aukist til muna á stjórn UMFG, sem skipuð er sjálfboðaliðum eins og tíðkast í svona starfi. Á 654. fundi bæjarráðs 22. mars sl. samþykkti bæjarráð beiðni félagsins um framlag til að standa að ráðningu framkvæmdastjóra í hlutastarfi fyrir félagið. Um er að ræða nýtt framlag sem veitt verður út samningstímabilið, til viðbótar við áður upptalinn stuðning við félagið. Reynslan verður metin og yfirfarin fyrir lok árs 2027, þar sem um nýtt fyrirkomulag er að ræða. Með viðbótarframlaginu er ætlunin að styðja við og styrkja enn frekar það góða starf sem unnið er hjá UMFG.
Samstarfssamningur bæjarins og UMFG er til fjögurra ára og er það trú beggja aðila að hann verði til þess að efla starfsemi UMFG til heilla og framfara fyrir börn, ungmenni og samfélagið allt í Grundarfirði.