Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur ályktað reglulega um viðhald þjóðvega allt frá árinu 2020. Undir því máli í málaskrá bæjarins eru ríflega 100 færslur, sem þýðir gögn og bókanir á fundum. Því miður hefur verið samhljómur í skilaboðum bæjarstjórnar æ síðan, um sífellt versnandi ástand þjóðveganna sem við reiðum okkur á.  

Frá því í upphafi árs 2025 hefur bæjarstjórn tekið þennan dagskrárlið til umræðu á hverjum einasta fundi sínum og bæjarráð hefur heldur ekki látið málið ósnert. Fimmtudaginn 7. maí sl. var haldinn 50. bæjarstjórnarfundur kjörtímabilsins og jafnframt, að líkindum, sá síðasti. Á fundinum var eftirfarandi bókað í fundargerð bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar undir dagskrárlið um ástand þjóðvega á Snæfellsnesi:

Bæjarstjórn harmar að ástand þjóðveganna hafi ekki lagast meira en raun ber vitni, þrátt fyrir brýna þörf fyrir umbætur og óskir íbúa á svæðinu. Bæjarstjórn vonast til þess að umbætur verði á mikilvægum innviðum Snæfellinga á allra næstu misserum.
Samþykkt samhljóða.

 

Eldra efni um sama málefni:

HérÁlyktun aðalfundar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, 26. mars 2025 um vegamál, frétt SSV.  má nálgast umræðu og fjölmargar bókanir bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar um ástand þjóðveganna

Hér má nálgast myndasafn Snæfellinga sem sýnir ástand þj´´oðvegar 54, Snæfellsnesvegar, árið 2025 og fleiri vega á svæðinu. 

Erindi sent Samgöngustofu í febrúar 2025 í samræmi við ályktun bæjarstjórnar.

Sveitar- og bæjarstjórar á Vesturlandi funda með forsætisráðherra og innviðaráðherra 10. mars 2025, frétt SSV.

Benda má einnig á opnar greinar (færslur) bæjarstjóra á Facebook, s.s. færslur 18. febrúar 2025, og 13. febrúar 2025, um alvarlegt ástand þjóðvega og um þá brýnu þörf að þjóðvegirnir þoli þungaflutninga nútímans.