- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Sundlaugin Grundarfjarðar verður lokuð frá 31. mars til og með 6. apríl vegna viðhaldsvinnu í búningsklefum íþróttamiðstöðvar.
Sú nýlunda varð í vetur að sundlaugin er í fyrsta skipti upphituð yfir vetrartímann, hingað til hefur aðeins verið hægt að nýta heita potta og vaðlaug. Ljóst er að þessi breyting hefur fallið vel í kramið hjá íbúum Grundarfjarðarbæjar sem og gestum en metfjöldi hefur komið í laugina það sem af er vetri.
Sundið hefur sannarlega yljað í skammdeginu og hér er stiklað á stóru yfir þær breytingar sem orðið hafa á sundlauginni undanfarið.
Hér er hægt að sjá almennan opnunartíma sundlaugarinnar ásamt verðskrá ársins 2026.