Ljósmynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti samhljóða á síðasta fundi sínum samning við JAE ehf. um áframhaldandi vinnu við þróun baðlóns í Grundarfirði. Í kjölfarið undirrituðu Birkir Jón Jónsson bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar og Aðalsteinn Jónsson Þorsteinsson fyrir hönd JAE ehf. samninginn.
Samningurinn er framhald af
viljayfirlýsingu sem aðilar gerðu í júní síðastliðnum og markar áframhaldandi vinnu við þróun verkefnisins.
Samningurinn gildir í níu mánuði og verður á þeim tíma unnið, á vegum JAE ehf., að frekari rannsóknum, útfærslu og undirbúningi verkefnisins. Meðal þess sem verður skoðað er nánari staðsetning og afmörkun baðlóns, möguleg vegtenging og aðkoma, útfærsla mannvirkja og aðrar tæknilegar forsendur verkefnisins.
Grundarfjarðarbær og JAE ehf. munu jafnframt fara reglulega yfir stöðu og framvindu verkefnisins á samningstímanum.