Grundarfjarðarbær hefur nú auglýst á Skipulagsgátt HMS tillögu að blágrænu ofanvatnsskipulagi fyrir Grundarfjörð í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þetta skipulag verður rammahluti Aðalskipulags Grundarfjarðar 2019-2039 og um leið stefnumótun fyrir þróun almenningsrýma í bænum. 

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti á bæjarstjórnarfundi 12. mars sl. að auglýsa tillöguna. Skipulags- og umhverfisnefnd hafði áður fjallað um og samþykkt tillöguna á fundi sínum 9. mars. Tillagan er í auglýsingu frá 21. apríl - 2. júní 2026 og á þeim tíma er hægt að senda umsagnir og ábendingar um skipulagið í gegnum Skipulagsgátt. 

Grundarfjarðarbær fékk styrk úr stóru Evrópusambandsverkefni sem nú stendur yfir á Íslandi. Verkefnið kallast LIFE-ICEWATER og styrkur bæjarins er ætlaður til þess að innleiða metnaðarfulla framtíðarsýn bæjarins í fráveitumálum, m.t.t. meðhöndlunar ofanvatns. Grundarfjörður verður fyrsta sveitarfélagið á landsvísu til að innleiða blágræna innviði í heilu þéttbýli, sem lið í því að ráða við aukið magn af ofanvatni. Því er rammahluti aðalskipulags fyrir blágrænar ofanvatnslausnir lykilverkefni í innleiðingu LIFE-ICEWATER verkefnisins í bænum.

Rammahlutinn mun leggja línurnar fyrir skipulag og framkvæmdir í almenningsrýmum bæjarins, með bindandi skipulagsákvæðum sem nauðsynleg eru fyrir skilvirka meðhöndlun ofanvatns. Markmiðið er að flétta blágræna innviði sem geta tekið við og veitt ofanvatni á yfirborði saman við almenningsrými og aðra græna innviði Grundarfjarðarbæjar. Þetta mun gera bæinn grænni, meira aðlaðandi og betur í stakk búinn að taka við auknu vatnsmagni, auk þess sem mengun er hreinsuð úr ofanvatninu áður en það rennur út í sjó.

Kynningarfundur um tillöguna verður haldinn í Sögumiðstöðinni, Grundargötu 35, mánudaginn 27. apríl nk. klukkan 17:00-18:30.

Skipulagsgögn má finna hér

Grundarfirði, 21. apríl 2026.
Sigurður Valur Ásbjarnarson,
skipulagsfulltrúi Grundarfjarðarbæjar