Grundarfjörður í vetrarbúning. Ljósmynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Grundarfjörður í vetrarbúning. Ljósmynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Bæjarráð samþykkti á 663. fundi sínum þann 26. nóvember 2026 að stofna umferðaröryggishóp Grundarfjarðarbæjar. Hópnum er ætlað að halda utan um umferðaröryggismál, samræma vinnu, forgangsraða verkefnum og fylgja eftir ábendingum um úrbætur.

Umferðaröryggismál hafa reglulega komið til umfjöllunar hjá Grundarfjarðarbæ undanfarin ár og fjölmörg verkefni eru í vinnslu eða undirbúningi. Með stofnun hópsins verður til sameiginlegur vettvangur til að halda utan um þessi mál, samræma vinnu, forgangsraða verkefnum og fylgja eftir ábendingum um úrbætur. 

Fulltrúar í umferðaöryggishópnum

Í hópnum sitja:

  • Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála og formaður hópsins
  • Örvar Þór Örlygsson, verkefnisstjóri tæknimála og framkvæmda
  • Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi
  • Heimir Jónsson, verkstjóri áhaldahúss

Hópurinn mun skila fundargerðum til skipulags- og umhverfisnefndar. 


Ert þú með ábendingu?

Íbúar eru hvattir til að koma ábendingum um umferðaröryggi á framfæri við Grundarfjarðarbæ. Ábendingum má skila í gegnum Hafa samband hér á vefnum.