- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Þriðjudaginn 21. apríl sl. bauð Grundarfjarðarbær til samráðsfundar um upplandið, þ.e. opna útivistarsvæðið ofan þéttbýlis og í nágrenni þess. Fundurinn var vel sóttur og margar góðar hugmyndir komu fram sem nú er verið að vinna úr. Þátttakendum eru færðar kærar þakkir fyrir sitt framlag.
Þeir sem ekki komust á fundinn gefst tækifæri til þess að koma sínum hugmyndum á framfæri í hlekknum hér: Könnun um upplandið. Hægt er að senda inn hugmyndir til og með 8. maí nk.
Tildrög verkefnis
Verkefnið er skilgreint í aðalskipulagi: OP-5 útivistarkraginn er skilgreindur í aðalskipulagi og segir svo:
„Ofan þéttbýlis eru nokkur ólík opin svæði sem með góðu skipulagi geta myndað eina heild".
Í skilmálum OP-5 segir enn fremur:
„Unnið verði heildarskipulag fyrir útivistarkragann sem miðar að því að skapa skjól með trjárækt og öðrum gróðri og bæta útivistaraðstöðu með stígum, bekkjum og annari aðstöðu sem hæfa þykir."
Hægt er að lesa frekar um OP-5 útivistarkragann í aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039.
Icewater: Einn verkþáttur í LIFE-Icewater verkefninu, sem fjármagn hefur verið eyrnamerkt í, er að leita leiða til að styrkja gróðurfar og jarðveg í upplandinu á þeim vatnasviðum sem liggja að bænum. Markmiðið er að jarðvegur og gróður geti bundið betur vatn og dregið úr rennsli þess niður hlíðarnar og einnig dregið úr líkum á jarðskriði.
Samstarf við Land og Skóg: Grundarfjarðarbær og Land og Skógur eru í samstarfi sem felur í sér að greina hvar sé heppilegt að fara í uppgræðslu ásamt greiningu á staðargróðri. Út frá þessari vinnu verður kynnt uppgræðsluáætlun.
Nýtt land að Grund: Grundarfjarðarbær festi kaup á jörðinni Grund síðasta sumar og býður það upp á spennandi útivistarmöguleika.
Næstu skref
Á 302. fundi bæjarstjórnar, 9. október 2025, var tillaga lögð fram um að stofna samráðshóp, skipaðan fulltrúum úr helstu nefndum bæjarins til að undirbúa uppbyggingu OP-5, útivistarkraga ofan byggðar, var sú tillaga samþykkt samhljóða. Í kjölfarið voru fulltrúar úr bæjarstjórn, skipulags- og umhverfisnefnd, íþrótta- og tómstundanefnd og menningarnefnd tilnefndir. Hópurinn hefur það hlutverk að vinna með fjölmörgum hagaðilum að því að rýna svæðið ofan byggðar, skv. stefnu aðalskipulags, og draga fram helstu óskir íbúa og forsendur fyrir nýtingu svæðisins. Var fundurinn 21. apríl sl. fyrsta skrefið í þeirri vinnu.
Í kjölfarið verða helstu niðurstöður fundarins teknar saman og unnar áfram ásamt því að hagaðilar verða kallaðir til eftir þörfum.