Vinnuskóli sumarið 2022

 

Vinnuskóli Grundarfjarðarbæjar verður starfræktur frá 7. júní til 8. júlí, alls í fimm vikur, fyrir elstu fjóra árganga grunnskólans. Vinnutími er 6 tímar á dag á virkum dögum, nema á föstudögum, þá er unnið í 5 tíma. Athugið að mögulega verður sjöttu vikunni bætt við frá 11. – 15. júlí, en ákvörðun um það verður tekin með hliðsjón af áhuga þátttakenda o.fl.

Vinnuskólinn er sambland af námi og starfi, fræðslu og hvatningu. Vinnuskólinn er fyrsti vinnustaður mjög margra. Við leitumst sérstaklega við að vanda fræðslu, efla frumkvæði nemenda og áhuga þeirra fyrir umhverfi sínu og fyrir starfinu, að kenna rétt vinnubrögð og fagna góðu verki.

Þau sem taka þátt í allri dagskrá vinnuskólans fá greidd laun í samræmi við mætingu. Í lokin verður síðan skemmtilegt lokahóf.

Allir nemendur Vinnuskóla Grundarfjarðarbæjar fá umsögn um frammistöðu sína að sumarstarfi loknu. Atriði sem skipta máli í matinu eru: frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi, tillitssemi og samvinna, hæfni til að taka fyrirmælum, vandvirkni, afköst og meðferð verkfæra.

 

Sjá nánar um Vinnuskólann 2022 - reglur og starfskjör

 

Laun 2022 eru þannig:

 

Tímakaup

7. bekkur (fæðingarár 2009)

1.100 kr.

8. bekkur (fæðingarár 2008)

1.222 kr.

9. bekkur (fæðingarár 2007)

1.467 kr.

10. bekkur (fæðingarár 2006)

1.711 kr.

 

 

Umsóknareyðublöð má nálgast hjá skólaritara grunnskólans, á bæjarskrifstofu eða prenta út hér.

Mikilvægt er að skila inn umsókn í síðasta lagi 27. maí nk. Það má skila inn umsóknum rafrænt á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is skila á bæjarskrifstofu eða til skólaritara. 

Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofunni í síma 430 8500 (milli 10-14 virka daga) eða hjá Valdísi Ásgeirsdóttur umsjónarmanni vinnuskólans í síma 862 9952. 

 

Vinnuskóli Grundarfjarðarbæjar